Atburđarteljari

Auglýsing

Atburđarteljari

Oplysninger

Blogg Láru og Kára í Ameríku janúar - júní 2008 :)

Ameríka

Könnun

Hvađ á ađ gera um verslunarmannahelgina?

Yellowstone, Kanada, Seattle

23. maí 2008 klukkan 07:59
Blessuð og sæl

Hér sitjum við inni á hótelherbergi í Grants Pass í Oregon og ákváðum að skella inn færslu handa heimamönnum sem lesa þetta blogg. 

Yellowstone var rosalega skemmtilegur staður, daginn sem við lögðum af stað þangað sáum við fjóra skógarbirni á rölti og hjörð af elgdýrum og Buffalóum. Við keyrðum í gegnum Montana til að komast ap vesturinngangi garðsins sem var þó í Wyoming. Fyrsta kvöldið var flott og gott veður og við sáum alveg helling af dýrum við vegarkantinn, en næsta dag var blindbylur og snjókoma. Þá vorum við auðvitað búin að bóka hestaferð en misstum af henni vegna þess að vegurinn lokaðist vegna þess að hjörð af buffalóum var búinn að blokka allan veginn og þar biðum við í ca 1 klst. því dýrunum lá ekkert á að færa sig og enginn þorði að abbast upp á þau.

Næsta dag var veðrið miklu betra og við fórum í 2 klst hestaferð um Yellowstone og fenum svaka flott útsýni og riðum í gegnum mikið nætur-orustusvæði, þar var allt morandi í beinum og hræjum og sáum dádýr og elgdýr. Kári var fljótur að sýna hestinum að hann réði og hesturinn hlýddi Kára í einu og öllu, en ég var víst of lin við minn hest sem var líka hálfgalinn, og gerði þessa ferð að mikilli adrenalínsupplifun. Alltaf þegar við fórum yfir ár sem mér var mjög illa við stoppaði alltaf hesturinn minn og neitaði að hreyfa sig í miðri ánni. Svo ef einhver hneggjaði þá skaust hann af stað og svo var hann í engu formi og mér leið eins og ég væri að hálfdrepa greyið. Ég veit allavega að ég þarf að sýna þessum hestum á ranchinum í lok ferðarinnar hver ræður.

Daginn eftir brunuðum við alla leið til Calgary í Kanada.

Kanada var gott frí frá Bandaríkjunum...allt miklu meira yfirvegað og hreinna að vissu leyti. Það var samt miklu dýrara í alla staði og bensínverðið svipað og heima. Banff var alveg rosalega flottur staður, aðallega flott keyrsla samt, en Banff er samt ekki fallegasti staður í heimi eins og einhver heimasíða sagði. Í Banff fórum við upp í gondólu og fengum flott útsýni yfir allt svæðið, fórum síðan í 2 klst gönguferð upp að voða flottum fossum og ám. Við sáum roalega flott monuments og spottuðum marga Elgi.

Jasper var mjög svipað og Banff og það helsta að frétta þaðan er að við sáum svartbjörn alveg við veginn að borða ber. Við brutum allar reglur og fórum út að taka myndir af honum, og vorum í ca 8 - 10 metra fjarlægð frá honum. Hann var rosalega flottur. 

Næst fórum við til Vancouver sem minnir svolítið á New York borg, mikið kaos og svakalega mikil umferð. Svo fórum við til Vancouver Island til bæjarins Victoria og af öllum dögum ársins vorum við svo heppin að lenda akkúrat á Victoria day þannig að öll hotel voru tvöföld í verði. Það var samt frábært að vera þar og það var líka rosa fallegt. Þar skelltum við okkur í Bug zoo... sem var mjög gaman, fengum að sjá fullt af viðbjóðslegum skordýrum og gátum haldið á þeim (sem við létum þó vera). 

Svo var brunað til Seattle um leið og við komum aftur til USA sem gekk hálfbrösulega því ég hafði týnt (hent) einhverju bréfsnifsi. Það fyrsta sem blasti við okkur á highway-inu í USA var skilti og á því stóð stórum stöfum "LITTER AND IT WILL HURT"!

Seattle var geggjað, fengum okkur hádegismat uppi í Space needle og fengum útsýni yfir alla borgina. 

Á morgun bíða okkur heimsins stærstu tré.

Bless í bili

Lára og Kári



Baráttan viđ náttúruna!!

08. maí 2008 klukkan 04:22
Jæja

Héðan er allsvakalega mikið að frétta.

Byrjum á byrjuninni, Kári átti afmæli á Hawaii og við skelltum okkur á fjórhjól sem var svo sannarlega í orðsins fyllstu merkingu, DRULLUgaman!! Svo um kvöldið fórum við á Luau sem er svona Hawaii hefð, þar sem við átum helling af Hawaii mat og hlustuðum á Hawaii tónlist og horfðum á svaka skutlur dansa!

Nokkrum dögum síðar komum við aftur til San Diego og gistum hjá Dóru og Roy, staðnum sem ég er farin að nefna "bleika skýið". Þar tókst okkur að snúa sólarhringnum við og fitna smá fyrir road-trippið sem var framundan. Við erum semsagt komin á bílaleigubíl, Chevrolet Impala sem hefur fengið nafnið Leifur Heppni sem er alveg svakalega kósý bíll en mikið rosalega pissar hann bensíni!! Við héldum til Las Vegas þar sem við gistum í kastala og vorum á 25 hæð með útsýni yfir allt strip-ið. Þar fóru áætlanir ekki eins og á horfðist, en við héldum þó tapinu í lágmarki, við skelltum okkur á Cirque de Soleil á Mystére sem var gaman að sjá. Vegas var alveg svakalega lifandi og hvert sem maður fer þá er eitthvert peningaplott í gangi. 

Næst héldum við af stað til Zion þjóðgarðsins sem var mjög gaman. Þar er alveg rosalega fallegt og mikið af skemmtilegum gönguferðum. Kári dró okkur í 4 klst. göngu upp á geðveikt háan klettatind, Angels Landing heitir gangan, og er mjög erfið og það eru einungis helmingslíkur á að fólk þori upp á efsta tindinn þar sem seinasti kílómetrinn er einungis nokkura metra breiður og með þverhníptu mörgþúsund feta falli niður og nokkrar keðjur hér og þar til að halda í. Ég ákvað að skella mér upp á tindinn með gífurlegu erfiði en Kári kaus að staldra við og njóta útsýnisins. Fyrst gekk þetta vel en svo missti ég óvart vatnsflöskuna mína sem hrundi beinustu leið niður í eitthvað gil og þá panikkaði ég. Með mikilli hjálp vinalegra samgöngumanna komst ég upp á tindinn þar sem ég ríghélt mér í stein og þorði varla að taka myndir. Ég sem er ekki mikill fan að fjallgöngum, var ekki lengi að kaupa mér bol sem staðfestir að ég fór upp á þennan árans tind og á svo sannarlega heiður skilinn!! 

angels landing

Við gistum á móteli alveg við inngang þjóðgarðsins og eina nóttina komum við ekki dúr á auga, sennilega út af öllu þessu græna tei sem við erum byrjuð að drekka, erum alveg eins og gamlar kellingar. Sólin var að koma upp og við ákváðum að fara út að taka myndir af sólarupprásinni og Kári rífur upp hurðina og labbar út berfættur og sér könguló sem honum fannst áhugaverð og kannast við, er það þá ekki bara SVARTA EKKJAN mætt í morgunkaffi!!! Þetta varð ekki til þess að bæta úr svefnleysinu, við skiptumst á að hrökkva í kút og sváfum útdúðuð og í sokkum.

Við vorum hálffegin að komast í burtu enda vorum við hálfpirruð og alveg ósofin, og keyrðum af stað til Lake Powell í gegnum Bryce canyon, en það gekk hálfbrösulega þar sem GPS vinkona okkar (sem við keyptum hræódýra í Best Buy) SÖKKAR!!! Hún Mandy var alltaf að leiða okkur inn á einhverja kolólöglega vegi og áttar sig ekki einu sinn á því ef það er stórt fjall í veginum fyrir manni. Það var farið að myrkva og við ætluðum að reyna að komast til Lake Powell fyrir miðnætti og ókum frá Bryce canyon sem var svakalega flott. Það helsta að frétta úr þeirri ökuferð er að við vorum næstum því búin að keyra á ofsahraða á dádýr!! Við sáum dádýr við vegarkantinn og þegar við vorum ca. 10 metra frá því ákvað það að stökkva beint í veg fyrir okkur og Kári snarstoppaði og bíllinn skransaði og rann örlítið út á kant og ég get svo svarið að við rétt strukum dindilinn á þessu vitlausa dýri. Það er allavega engin furða að þau séu á botni fæðukeðjunnar! En allt fór vel sem betur fer. 

Lake Powell var stutt en skemmtilegt stopp, sáum margt fallegt og þrátt fyrir sífelldar skipanir frá GPS tækinu um að stytta okkur bara leið yfir vatnið, komumst við þaðan í heilu lagi! 

Næst fórum við til Moab í Arches national park sem var mjög svipað og hitt sem við höfðum séð þannig að það var ekkert svakalegt sem gerðist þar, nema kannski að við sáum skilti sem á stóð KLONDIKE, þar sem Jóakim aðalönd varð ríkur. 

Svo keyrðum við til Salt lake city sem er alveg geggjaður staður. Fengum svaka fínt veður og voða gott að komast í smá siðmenningu eftir allt þetta fjallastand, ég var ekki lengi að finna þetta svaka fína shopping center. Við skoðuðum the Temple og sáum marga mormóna. Annars var mjög hreint þarna og okkur leið mjög vel þarna, gætum alveg farið þangað aftur. 

Núna erum við í Jackson Hole í fjallakofa-hóteli sem er alveg rosalega flott. Ég gæti alveg ímyndað mér að Sviss líti svona út, en ég hef ekki hugmynd!

Á morgun er það svo Yellowstone, meiri náttúra.... svo er það Kanada, enn meiri náttúra.

Jæja, náttúran kallar Glottandi

Lára og Kári

Hawaii paradís! -NÝJAR MYNDIR

21. apríl 2008 klukkan 11:23
Hæ hæ og afsakið bloggleysið. 

Eftir að við skildum við ykkur síðast vorum við nýbúin að hitta stjörnurnar í Hollywood og hittum hana Herdísi skvísu, systur mína (Láru) í Santa Cruz. Það var mjög gaman að hitta hana eftir svona langan tíma. Við fórum m.a. að surfa í kaldasta sjó í heimi. Hendurnar á manni urðu dofnar og svo voru selir þarna rétt í kring. Þetta var samt góð helgi í alla staði. 

tveimur dögum seinna var ferðinni svo heitið til Honolulu á Hawaii, og þvílík paradís! Við erum svo sannarlega búin að hafa það gott hérna. Fórum fyrst á frekar slappt hostel, skiptum svo því við fundum annað frábært og jafndýrt hótel rétt hjá og það gerði dvölina enn betri. Þar vorum við allavega með sérbaðherbergi en ekki að deila því með tveimur ósnyrtilegum gaurum. Á fyrstu eyjunni, Oahu, var rosa gaman. Við fengum alltaf fínasta veður. Það helsta sem segja skal frá er að einn daginn ákváðum við að skella okkur í hákarlaskoðun! Það var geggjað, við sigldum út á einhverjum litlum báti í massífum öldum og báturinn vaggaði svo mikið að 3 manneskjur ældu, af 10, Þ.Á.M Kári. Svo fórum við þrjú niður í svona rimlabúr og svo var búrið leyst frá bátnum! Þetta var HRIKALEGT!!! Maður sá EKKERT hvað maður var að gera þegar maður steig ofan í búrið, og hákarlauggar ALLT í kring! Karlarnir héldu einhvern fyrirlestur rétt áður en við fórum í búrið en það voru allir svo sjóveikir að ég held að enginn hafi náð orði af því sem þeir sögðu. Eftir að hafa komið sér ofan í þetta déskotans búr, sem var by the way með stærstu rimlum sem sögur fara af, maður hefði annað hvort getað synt út úr því eða einhver hákarl geta synt inn í það!!, þá leystu karlarnir það frá bátnum og við héldum af stað út í ólgandi sjóinn, og það voru sirka 20 -30 hákarlar í kring. Við vorum með svona snorkel gleraugu með svona gúmmíi fyrir nefinu og öndunarpípu. Fyrstu 10 mínúturnar ríghélt ég mér í rimlana með hausinn upp úr og gargaði og bölvaði öllu sem kom mér til hugar. Gaurarnir á bátnum ætluðu að draga mig að bátnum en þá ákvað ég að herða mig aðeins og með hjálp Kára þá stakk  ég hausnum ofan í og mikið rosalega var þetta geggjað! Við tókum fullt af myndum með svona vatnsheldum myndavélum. Til að toppa þetta höfðu gaurarnir fengið fréttir ÞEGAR við vorum á leið útí um að einhver bátur í afríku hafi verið með fólk í svona búri og ofsaalda hafði komið og feykt búrinu undir bátinn og 3 höfðu dáið! Svo til að toppa þetta enn meira, þá forum við 3, ég, Kári og bresk kona saman í búrið og bikiníið hjá konunni LOSNAR og ég þurfti að setja hondina út fyrir búrið til að geta krækt höndina með olnboganum til að halda mér meðan ég hjálpaði greyið konunni, á þeim tíma byrjaði ég að anda með nefinu sem er hulið gúmmíi, held ég sé að missa andann og byrja að garga enn á ný. Kári var ofursvalur og hélt kúlinu allan tímann.

Núna erum við hins vegar stödd á Maui, sem er önnur eyja á Hawaii. Ferðin þangað byrjaði á mjög skrautlegan hátt og með miklum pirring. Ég hafði pakkað vegabréfinu ofan í ferðatösku og fékk extra leit í gegnum allan handfarangurinn. Samt komst ég um borð í vélina með kerti og eldspýtur (sem mér finnst asnalegt). Við komum til Lahaina kl 10 um morguninn og skv. reglum hjá þessu fáránlega hosteli sem við fórum á, Pattey´s place, þá máttum við ekki tékka okkur inn fyrr en kl. 17. Eigandinn, sem bjó þarna og var ekki að gera neitt allan daginn en að glápa á sjónvarpið, bauð ekki upp á að geyma farangurinn neins staðar en sagði að við gætum fleygt töskunum bakvið einhvern sófa en það væri samt ekkert öruggt. Við semsagt drösluðumst með fartölvuna, og fullt af farangri á ströndina í steikjandi hita kl. 11 um morgun. Til að gera langa sögu stutta þá gátum við ekki verið á þessum stað lengur en eina nótt, því það var allt morandi í kakkalökkum og m.a. í rúminu okkar!! Gaurinn í lobbýinu var bara leiðinlegur, og sagði að þeir þrifu á hverjum degi sem er mesta bull. Það voru m.a. gamlir sandalar undir rúminu okkar og tonn af ryki þegar við fórum þangað. Baðherbergið var djók, með eldhússigti fyrir síu í sturtunni. Við semsagt skiptum og fórum á æðislegt hótel sem við fengum á svaka góðum díl því við sögðum konunni frá aðstæðunum okkar og hún bara lét vaða og gaf okkur meira en helmingsafslátt á stúdíóíbúð á ströndinni.

Svo í gær komum við hingað á þetta frábæra hótel með ocean-view og alveg á ströndinni. Afmælið mitt var frábært, enda ekki annað hægt á hawaii. Ég fór í svaka fínt nudd og svo um kvöldið fórum við rosalega fínt út að borða á Hyatt hótelið, í boði Dóru og Roy og enn og aftur takk fyrir það!

En núna er það afmæli Kára og það er allt planað, en ég get ekki sagt ykkur frá því því Kári veit ekki af því! 

Paradísarkveðjur,

Lára og Kári


Lífiđ í Hollywood

05. apríl 2008 klukkan 06:53
Jæja elsku lömbin mín. 

Mikið rosalega höfum við verið að lifa lífinu hérna undanfarna daga. Skelltum okkur til Hollywood á mánudaginn og vorum að koma aftur til San Diego. Við fórum ásamt Roy á Bel Air hotel þar sem er svona celebrity hang-out staður og fengum okkur 30 dollara hamborgara.. úr svona spes nautakjöti þar sem nautin eru nudduð og eitthvað.

Við strolluðum niður Hollywood blvd. og Rodeo drive. Við skelltum okkur á Jay Leno og það voru allir svo mikið að tala við okkur í röðinni að okkur leið eins og Britney og Kev! Einn gaur ætlaði meira að segja að biðja mig um eiginhandaráritun því hann hélt að ég ætti eftir að verða famous, þetta var svaka athygli. Kári var spurður hvort hann væri íþróttamaður og ég var spurð hvort ég væri á leið í tískutímaritin. Það var mjög furðulegt fólk á leið í Leno, m.a. pía sem var búin að fara rúmlega 300 SINNUM!! Hún tók viðtal við okkur og nú er það af einhverjum ástæðum komið á B2.IS  http://www.b2.is/?sida=tengill&id=280091
Endilega tékkið á því :)

Jay var mjög hress náungi og settið var pínulítið miðað við það sem maður heldur. Við vorum með geggjuð sæti beint fyrir framan kallinn. David Beckham var alveg rosa nettur og svakalega feiminn og í auglýsingahléum var alltaf mjög vandræðalegt moment milli hans og Jay. Ég ákvað að vera eins og algjör stalker og vinkaði fótboltakappanum sem leit mjög feiminn á mig og vinkaði með bros á vör Glottandi

En já, við sáum líka á Hollywood blvd. world premiere á Leatherheads og allar stjörnurnar voru á rauða dreglinum, við nenntum ekki að hanga þarna of lengi og sáum ekki George Clooney eða Renee Zellweger en sáum fullt af svona semi frægu fólki, þið sjáið bara myndirnar. 

Daginn eftir fórum við á "America´s got talent" og vorum á fremsta bekk og í geggjuðum sætum, BEINT VIÐ HLIÐINA Á DAVID HASELHOFF!! Hann er dómari í þessum þáttum og Jerry Springer er host-inn. Þetta er það steiktasta sem við höfum upplifað. Fólk kom þarna til að reyna að vinna milljón dollara og við erum að tala um 41 árs mann sem var hoppandi á skopparakringlu, gaurar með spilagaldra, kínverska fimleikagaura sem kunnu ekki orð í ensku og þurftu túlk, rappandi kokk sem söng "i´m grillin and chillin", útúrdópaður gaur sem hélt því fram að hann væri fallegastur í heimi og hoppandi blöðrur.Einnig mætti á svæðið rosalega creepy 7 manna fjölskylda sem voru að spila á hljóðfæri, og svo sannarlega ekki vel. Ameríkanar eru svo rosalega mismunandi eins og þeir eru margir. 
Við fengum áritun frá David Hasselhoff og ég bað Jerry Springer um að fá að taka mynd af mér með honum.


Við fórum svo næsta dag í Universal studios og sáum settin á mjög mörgum myndum, og myndirnar segja meira en þúsund orð. 

Í dag tókum við lest aftur til San Diego á Business class, og svo var límúsína að bíða eftir okkur á lestarstöðinni og keyrði okkur til Dóru og Roy. Á morgun erum við að fara að fljúga til San Fransisco að hitta herdísi og það verður önnur limúsína að bíða eftir okkur hérna í fyrramálið til að fara með okkur út á völl!!! Dóra og Roy eru allt of góð við okkur hérna. Við erum heldur betur farin að venjast þessu dekri.Saklaus

Adios frá stjörnunum í CaliforníuSvalur

JAYYYY LEENOOOO

29. mars 2008 klukkan 04:52
Hæ hæ ....

Við höfum það ótrúlega gott hérna í Californíu. Héðan er margt að frétta og ég er að spá í að telja það bara upp..

1. Við erum HÆTT VIÐ að fara til Mexíkó. Ástæðan er sú að hérna hafa margar viðvaranir verið gefnar um að fara alls ekki yfir til Mexíkó, vegna mikillar fjölgunar á glæpum og mannránum. Fyrst héldum við að þetta væri einungis í Tijuana og á slíkum stöðum við landamærin en eftir mikla upplýsingaleit komumst við að því að þetta er orðið algengt á hinum mestu ferðamannastöðum og sögurnar eru HRÆÐILEGAR!! Ríkisstjórnin er gjörsamlega spillt, og það er talið að um 60% AF LÖGREGLUMÖNNUM séu spilltir líka. Fólki er rænt, nauðgað og drepið daglega og við viljum bara ekki fara þangað með óttaslegnu hugarfari og mikilli áhættu, því það gæti rústað ferðinni .. og okkur. Mexíkóskar ferðaskrifstofur eru meira að segja að ráðleggja fólki að fara ekki. Við förum eftir nokkur ár þegar við verðum ekki á low budget og höfum efni á betri hótelum og transportation.

2. Við erum að fara til HAWAII 10 apríl og verðum þar í 2 vikur, og yfir afmælið okkar. Ástæðan er sú að þegar við erum 21 árs getum við leigt bíl og keyrt um. 

3. Við ætlum að keyra til Las vegas og upp til Lake Powell og alla leið til Yellowstone, upp til KANADA, keyra til Vancouver, koma svo aftur til USA og keyra niður til Californíu og þá er kominn tími á river rafting og cowboy ranch-inn okkar.

4. Á máudaginn erum við að fara til HOLLYWOOD  og á þriðjudaginn verðum við meðal áhorfenda í JAY LENO og gestur kvöldsins verður enginn annar en DAVID BECKHAM!!!Glottandi Yfirleitt er langur biðlisti að komast að sjá þáttinn en við skráðum okkur á óskalista og fengum póst í dag um að við gætum fengið miða.. og Roy telur að það að við séum fra Íslandi hafi veitt okkur miðana því að við sögðum þeim frá því á óskalistanum!!!

5. Við höfum haft það voðalega gott, fórum í San Diego zoo í dag og sáum pöndu og baby pöndu sem var mög flott. Dóra á afmæli í dag og við fórum saman út að borða í kvöld á mjög flottan veitingastað með útsýni yfir alla borgina.

6. Svo næstu helgi erum við að fara að fljúga til san fransisco (FLUG var ódýrara en 12 tíma rútuferð) og hittum Herdísi á flugvellinum og keyrum öll sama til Santa Cruz og höfum það notalegt yfir helgina, ætlum m.a að fara í nokkra surf kennslutíma.

Þetta er gróflega það sem við höfum verið að bralla....

þangað til næst.

Lára og Kári!Svalur


Grand Canyon, Sedona, Tarantúla, San Diego og nýjar myndir

23. mars 2008 klukkan 07:39
Blessaðir kæru lesendur. 

Það er margt gott að frétta héðan af okkur. Þegar við skildum síðast við ykkur vorum við í Phoenix, og héldum svo til Flagstaff, sem er svona lítill fjallabær sem liggur um route 66. Þar gistum við á hosteli sem var hræódyrt, og mikil þjónusta. Fengum nóttina á 40 dollara, við vorum sótt á rútustoðina og fengum frían morgunmat. Anyways, við fengum einnig ódýra dagsferð til Grand Canyon, og það var SCHNIIIIILLLD! Guide-inn var ungur strákur sem lét okkur loka augunum og leiddi okkur upp ad klettabrúninni og sagði okkur svo að opna augun og þvílík snilld og fegurd blasti vid okkur. Enda var glampandi sól og ekki ský á himni. Vid fórum í 2 gönguferðir í Grand Canyon, Bright angel trail og eitthvad south kaibaba minnir mig. Þetta voru ÞVERHNÍPTIR klettar, med engu handridi, mjog takmorkudu plassi og 2 thusund METRA falli ef madur myndi misstiga sig og renna. Til ad toppa thetta var GLERHALKA og madur var hálfskautandi niður klettana, sem voru svakalega brattir. Við urðum líka ansi heppin að mæta múlasnahjörð á leiðinni niður og einn asninn var með svo margar toskur a bakinu ad hann rakst  Kára sem flaug SEM BETUR FER í átt ad klettinum. Við vorum líka aðeins og svöl þarna, ég var í Calvin Klein úlpunni minni og Kári í Calvin buxunum sínum með Ray Ban sólgleraugun, við bæði í slip-on skóm og skautuðum fram hjá fólkinu með mannbroddana og göngustafina. Annars var þetta bara flott, flott og ennþá flottara.
Næsta dag eftir svaka mikid vesen og rugl komumst við loksins til Sedona, sem er líka lítill fjallabær sem er geggjaður og þekktur fyrir rauða kletta og mikla náttúrufegurð. Við erum rosalega sátt með að hafa komist þangað, en það var eins og að bóka flug með Icelandair til tunglsins að komast þangað. Þið verðið að skoða myndirnar þó að þær sýni ekkert eins og það var.
Kári gerði "svaka" góð kaup í Sedona og keypti sér TARANTÚLU í einhverju glerboxi sem hann ætlar að hafa í stofunni hjá okkur í vetur!! Til að toppa alltsaman þá lýsir þetta gler upp i myrkri þannig að þessi könguló á eftir að vera mjög áberandi. Öskrandi

Þegar Kári var farinn að iða í skinninu að fá að kaupa SKRÖLTORM í stofuna líka, þá stóð mér ekki lengur á sama. 

Við fórum í rútu til San Diego í gær, og komum seint um nóttina, og Dóra frænka hans Kára sagðist hafa reddað hóteli fyrir okkur og þegar við mættum á svæðið var þetta 4 stjornu lúxus hótel og herbergi á 18 hæð. Við sváfum bæði eins og englar og þetta var rosalega flott.
Roy kom svo og sótti okkur í hádeginu á splunkunýjum Jaguar, 420 hestöfl.. en frekar lítið pláss fyrir mig í aftursætinu, enda einungis 2 sæta bíll. Við komum í hlað hjá Dóru og Roy 30 min seinna og við blasti flottasta hús sem við höfum séð.  Við erum með rosalega flott herbergi hérna og það er bara eins og við séum hjá konungsfjölskyldu. 

Þau fóru með okkur í hádegismat í Del Mar og keyrðu með okkur til La Jolla og sýndu okkur ýmislegt skemmtilegt að sjá. 

Á morgun erum við að fara ásamt Dóru og Roy í páskaboð á Four Seasons. Manni er farið að líða eins og einhverri celebrity hérna... 

California leggst rosalega vel í okkur.

Þangað til næst..

Lára og Kári

"Yeah if you want to be freakin difficult!!!" -Nýjar myndir!

17. mars 2008 klukkan 08:14
Jaeja... tha er loksins sa dagur runninn upp ad madur fann freakin tolvu i thessu hathroada landi. Thad hefur verid mikid a seydi herna hja okkur vitleysingunum. Ef vid byrjum thadan sem vid haettum seinast..

Eftir hrikalega leidinlega Montgomery heldum vid til Memphis sem var mun betri. Thar gistum vid a Artisan hoteli fyrstu tvaer naeturnar, og forum ad skoda hollina hans Elvis, Graceland og vid fengum ad sja alltsaman, inn i husid hans, bilasafnid hans, bugardinn, inn i flugvelarnar hans og svo grofina hans. Madur kynntist honum mun betur tharna. Vid forum lika i svona sightseeing tour um Memphis.... og gaurinn var med svo mikinn hreim ad vid skildum EKKERT hvad hann sagdi en hann syndi okkur allar heilsugaeslur, alla spitala og laeknadeildina hja haskolanum i Memphis. A timabili heldum vid ad vid vaerum i einhverri laeknanemaferd. Svo keyrdi hann fram hja thvi skemmtilega og tok stutt stopp fyrir utan SPITALA, til ad leyfa okkur ad skoda okkur um. Vid saum einnig stadinn thar sem Martin Luther King var skotinn.
Um kvoldid forum vid nidur i bae og hlustudum a sma blues og bordudum a Beale street. 

Eftir thetta tokum vid lest nidur til New Orleans og New Orleans er einn aedislegasti stadur sem vid hofum komid til. Folkid thar er svakalega indaelt, maturinn er rosalega godur, enda atum vid mikid af local gumbo og red beans og sausage supum. Thar forum vid i sightseeing tour og saum hverfin sem eru mjog gamaldags og evropsk og mikil saga fylgir baenum. Folk er mjog stolt af thvi ad vera fra New Orleans og veit mikid um forfedur sina langt langt aftur i timann. Vid forum lika i hurricane tour og saum hverfin sem foru verst ur kATRINU, og thad var rosalegt ad sja thad. Sums stadar saum vid bara troppur sem lagu ekki upp ad neinu thvi husin voru horfin. Vid forum einnig i svona Haunted tour um franska hverfid og laerdum mikid um draugana sem eiga ad vera i sumum husum thar og margar stadreyndir sem lata harin risa a manni. Ein saga er t.d. ad a einum veitingastad a ad vera kottur sem margir hafa sed og lata thjoninn vita, en thad a vist ad vera draugur sem hefur verid i rum 60 ar. Vid forum einnig i svona steamboat sem er einn af faum ALVORU steamboats. Tha var mjog skemmtileg upplifun og fengum lika godan New Orleans mat um bord. a Bourbon street sem er adal skemmtigatan tharna var mikid lif, og live music ut um allt. Eg, Lara, keypti mer geisladisk med mjog skemmtilegum gomlum kollum sem kalla sig Steamboat Willie. 
Thad var mjog furduleg taxi gella sem sotti okur einn daginn a hotelid okkar til ad fara med okkur nidri bae. Hun byrjadi a thvi ad tala um hvad vid gaetum treyst thessu taxi fyrirtaeki thvi thad svindladi sko ekki a manni og eg veit ekki hvad og hvad. Svo endadi hun a thvi ad svindla svaka a okkur og syna okkur HUSID SITT sem var einhvers stadar uti i GATI og vid misstum naestum thvi af batsferdinni okkar thvi hun var svo bilud. 
Annad sem gerdist i New Orleans var ad thad kom svakalegur stormur eina nottina og thad kom vidvorun ad allir aettu ad vera tilbunir ad yfirgefa svaedid ef tilskipun kaemi og himinninn var eins og diskotek allt kvoldid og sundlaugin yfirfylltist af vatni. Thad versta tho var ad beint fyrir utan hotelherbergid okkar vard arekstur og vid heyrdum bara i dekkjunum ad reyna ad stoppa og svo hoggid. Vid hlupum ut og aetludum ad hringja a neydarlinuna en gaurinn var i lagi og var buinn ad hringja a logguna en thad tok logguna u.t.b 30min ad koma a stadinn thvi thetta var vist svo slaemt hverfi ad engin logga thorir ad koma ein heldur koma thaer alltaf i hopum.

Eftir New Orleans forum vid til Houston og thar var eiginlega ekki neitt, en vid lentum akkurat a helgi og Houston sefur um helgar. Vid saum samt Pennzoil bygginguna sem Herdis vann hja og hun var rosalega flott. Houston var risastor og eins og einhver gaur sagdi tha er thetta concrete jungle. Vid forum i RISASTORT MALL sem var svo stort ad vid rotudum ekki ur thvi. Inni i thvi var stort skautasvell og vid skelltum okkur ad sjalfsogdu a kauta og skemmtum okkur svakalega, thratt fyrir ad Kari hafi bara notad kantana sem bremsur.Hlæjandi

Eftir Houston skelltum vid okkur til San Antonio sem var voda litill og kruttlegur baer. Vid forum a Riverwalkid sem var alveg otrulega flott, eins og halfgerd paradis. Thetta var mjog straumlitil a sem la i einhvers konar hring og  i kringum hana voru veitingastadir og kaffihus og mjog skemmtileg stemning. Vid hittum Beibei, kinverska vin minn (Láru) sem er ad laera i Austin og thad var svo gaman ad sja hann aftur. Hann var med kaerastanum sinum, sem heitir Chylee og vid forum oll saman i dyragardinn og forum svo ut ad borda um kvoldid. Eftir kvoldmatinn akvadum vid ad setjast nidur eftir mikla gongu og fa okkur sma hressingu og forum a stad sem heitir DICKs og hefur mikinn karakter og helsta karakterseinkennid er ad hafa kaldhaedid starfsfolk. Thetta er allt i grini en madur fattar thad ekkert strax. Matsedlarnir herngu i loftinu og eg meina alveg i loftinu. Thu gast ekki tekid tha nidur, heldur thurftirdu ad snua hausinn a ther nanast ur lid til ad geta lesid a tha. Kari og beibei pontudu ser gos,en eg og Chylee pontudum okkur jardaberja smoothie. Thegar eg sagdi sidan "can I get non alcholic" tha svaradi hun "YEA.. if you want to be freakin difficult"!! Annars var voda kosy i San Antonio, vid fundum m.a bol med islenska fananum a og a honum stod "O gud vors lands". Vid vorum ekki lengi ad kaupa hann.

Eftir thetta var ferdinni heitid til Phoenix, og thad var 18 tima rutuferd i PAKKADRI RUTU med ofvirkan krakkabjana fyrir aftan okkur og hann m.a. sparkadi og sparkadi i saetin, oskradi, reif i harid a okkur og mamman red ekkert vid krakkann. Vid stoppudum i El Paso til ad skipta um rutu og til okkar lukku forum vid i enntha threngri rutu. Fyrir framan okkur va voda saett litid dullubarn .... I FYRSTU. I lokin var thad byrjad ad grata og standa og stara a okkur og oskra a okkur "GIMME GIMME GIMME" ef vid heldum a einhverju forvitnilegu. Jaeja, loksins komum vid til Phoenix, daudthreytt a midnaetti og hlokkudum til ad fara inn a hotelid sem vd vorum buin ad boka. En tha hofdu toskurnar okkar akvedid ad fara i allt adra rutu!!! 
Vid stodum i Phoenix, a midnaetti ad deyja ur threytu og engar toskur!! Vid urdum alveg hoppandi reid og greyhound apinn sagdi bara ad ef ad allt faeri illa tha endudu toskurnar okkar i San Diego. Eftir ad vera buin ad leita i thremur rutum vorum vid farin ad missa vonina, en tha loksins, naestum 2 klst sidar..kemur onnur ruta og tha voru toskurnar okkar i henni. 

Nuna erum vid i Phoenix, ad plana ferd til Sedona. Phoenix er buin ad vera mjog heit (enda i midri eydimorkinni, herna eru ekki grasblettir heldur sandblettir), en svo a vist ad koma e.t.v. snjokoma i thessu yearround perfect weather stad. vid erum komin med fartolvu og vid aettum ad geta bloggad oftar. 

Vid soknum ykkar og vonum ad allt se i guddi tharna a klakanum."

"Sweet" home Alabama

28. febrúar 2008 klukkan 02:43
Jaeja, byrjum a byrjuninni.

Vid forum i siglingu til Bahamas sem var nu bara voda gaman.. okkur var sagt ad vid fengjum svaka finan "cabin" med voda flottu rumi og ollu tilheyrandi. Vid komum i klefann okkar, hann var ca. 7 fermetrar med klosettinu, svo blasti vid okkur thessi pinulitla KOJA og plast flugvela-klosett-klefi sem madur thurfti ad stiga upp i. Thetta var voda gaman.. vid lentum a hriongbordi i matnum med skrautlegu folki, ein stelpan var med thvilikan kjaft og pantadi alltaf bara allt sem var i bodi a matsedlinum vegtna thess ad madur fekk thad allt fritt.... svo hikadi hun ekki vid ad skila ollu. Thjonarnir donsudu m.a makarena og voru med bakka med einhverju eldfjalli a hausnum (sma svona had to be there moment). Eg (Lara) vard sjoveik og thurfti ad taka sjoveikistoflur sem gerdu mig bara halfruglada fyrsta kvoldid. I batnum var casino og pinulitil sundlaug. Bahamas er mjog kruttleg eyja en thar urdum vid vitni ad svakalegri fataekt. Vid forum i deluxe limusinuferd a limusinu sem var vid thad ad detta i sundur... bilstjorinn var hardur Bahamas-bui og vard mjog modgadur thegar eg spurdi af hverju vaeri svona mikil faetaekt i hverfinu sem vid vorum ad keyra i gegnum, folkid var med iskapa, thvottavelar o.fl uti.. og gluggar voru brotnir, keyrdum framhja nidurrifnu timburhusi med orlitlu skilti sem a stod DENTIST. Sum hus voru hrunin og thetta var rosalegt.

Vid forum lika i skodunarferd i einhverjar rustir sem vid vitum ekkert frekar um thvi guide-inn okkar vissi ekkert.. svo var ferdin buin eftir u.t.b. 10 minutur og tha sagdi hann "I'm a guy who lives on tips, please tip me.. THIS IS A LIVE RECORDING". Eftir ad hafa paelt adeins i thessu komumst vid ad theirri nidurstodu ad gaurinn hefur orugglega laert thetta af segulbandi og vissi ekkert hvad hann var ad segja. Vid forum ad snorkla i koralrifunum i karabiska hafinu og thad var ROSALEGA FLOTT.. fiskarnir nanast syntu upp i mann. Vid forum a markadinn a Bahamas og folkid thar er ROSALEGA agengt.. thad redst a mann thegar madur labbadi framhja og sumir reyndu cheesy trick eins og ad ljuga ad their aettu afmaeli og ad allt vaeri a utsolu bara i dag.

Eftir Bahamas heldum vid til Key West i obaerilegan hita, og thar sem eg hafdi fengid einhverjar steiktar flettur i harid a Bahamas og keyrt um med blaejuna nidri alla leid fra Maiami til Key West... fekk eg (Lara) eitthvad solar-adsvif og vard bara veik af hita, enda 35 stiga hiti og steikjandi sol. Eftir ad hafa rafad um baeinn i sma stund og stutta strandarferd, forum vid a hotelid thar sem eg kastadi upp. Kari vard lika halfslappur af hitanum.

Naesta dag akvadum vid ad skella okkur a Jetski ferd i kring um eyjuna.. med guide sem segdi okkur fra sogulegum stadreyndum. Thad for ekki betur en svo ad EG VAR REKIN UR FERDINNI af thvi ad eg thordi ekki ad keyra a 35 milna hrada (ca. 55 km hradi) beint a moti oldunum, a einhverju spitt-taeki sem eg hafdi aldrei komid a. I stadinn forum vid bara d fara a svona "free area" thar sem vid mattum leika okkur a jet-ski og vid vorum baedi sammala um ad thad var MIKLU skemmtilegra, og saum m.a. villta hofrungahjord sem synti alveg upp ad okkur og voru rosa flottir. Eftir ad hafa verid sma stund a thessu tryllitaeki for eg adeins ad gefa i og for alveg upp i 65 milna hrada, og Kari for upp i 95 MILNA HRADA (yfir 150 km hradi).. enda var hann meira fljugandi en siglandi. Honum var refsad daginn eftir med verstu hardsperrum sem sogur fara af.

Daginn eftir leigdum vid okkur 2 manna hjol, sem var algjort vesen. Vid hjoludum mjog misjafnt og stefndum bara i allar attir, vorum samt i matching outfits thannig ad folk hefur abyggilega haldid ad vid vaerum farands-sirkus, enda sagdi einhver roni vid okkur thegar hann sa okkur ad vid vaerum mesta skemmtunin sem hann hefdi sed alla vikuna.

Um kvoldid forum vid a street-carnival, saum mann gleypa eld, gaur vera hlekkjadan i spennitreyju sem losadi sig, hund ad sippa, sverdgleypa og ymislegt. Vid saum einhvern brjalaeding med kedjusog og hann valdi mig ur ollu crowdinu til ad "adstoda" sig adeins. Eg i sakleysi minu fer og thegar eg er komin inn i hringinn af folkinu, fleygir hann NAGLABRETTI fyrir framan mig. Eg stend skelfingu lostin og horfi a hann juggla (halda uppi) kedjusog, handsprengju og sverdi og velti fyrir mer "hvernig i oskopunum kom eg mer hingad??" (hann btw missti kedjusogina i att ad ahorfendum). Sidan fer thessi klikkhaus ur ad ofan (var med laglega BUMBU), lagdist ofan a naglabrettid og sagdi mer ad STANDA OFAN A SER!! Eg natturulega i stuttum kjol var ekki mjog satt med thetta og thar sem thad var mjog erfitt ad halda jafnvaegi ofan a thessum hlunk. thurfti Kari ad standa fyrir aftan mig med utrettar hendur ef eg skyldi detta.

Naest keyrdum vid thvert yfir Florida til ad fara i Busch Gardens, sem er skemmtigardur og er i Tampa. En med okkar heppni lentum vid bara i Noaflodinu og eg get svo svarid thad ad thad myndudust stoduvotn a gotunum (sja myndir).. Ollum taekjum var lokad og meira ad segja vatnataekjunum lika. Vid saum otrulega saeta baby gorillu og seinna um daginn stytti upp og vid gatum fari i flest taekin.

Eftir thad skiludum vid bilnum til Deland, forum i golf og erum nuna i Montgomery, Alabama... mesta krummaskurdi veraldar. Thetta er hofudborg Alabama, og okkur leid eins og leikurum i "I AM LEGEND" myndinni, thar sem thad var EKKI MANNSAL a gotum midbaejar. Vid rafudum um.. leitandi ummerkja um EITTHVAD LIFSMARK.. en svo rakumst vid a indaelisnaunga sem sagdi okkur ad nuna vaerum vid i hjarta midborgarinnar, og maeldi med ad vid faerum a vinsaelasta veitingastadinn i baenum, sem hefdi frabaeran mat. Vid alveg ljomudum upp og fengum vatn i munninn... en neinei, tha var thad einhver sveitt BJOR-VERKSMIDJA sem lyktadi eins og leikskoli. En thetta er allt buid ad vera mikill sveitafilingur. Vid pontudum okkur djupsteiktan krokodila-hala... sem okkur fannst ekkert vodalega godur.

A morgun forum vid til Memphis, heimsaekjum Elvis og siglum svo nidur Mississippi ana, nidur til New Orleans.

thangad til naest :)

Lara og Kari.

FULLT AF NYJUM MYNDUM!!!

25. febrúar 2008 klukkan 05:39

Vid erum buin ad setja inn 200 nyjar myndir... endilega tekkid a theim a myndasidunni okkar. Siminn okkar er aftur kominn i gagnid ef thid thurfid ad na i okkur.

Vid bloggum mjog fljotlega :)


Kvedja


Lara og Kari

MIAMI maniacs

13. febrúar 2008 klukkan 21:57
Vid erum her i godu yfirlaeti a Miami South Beach og thad hefur verid mjog gaman. Vid erum buin ad labba mikid um og sja margt. Forum i skodunarferd a bila-bat og saum fullt af snidugu doti, eins og t.d. husid hans Dr.Phil og hann sjalfan sitjandi thar fyrir utan. Vid saum husid hans Shack O'neill og Scarface husid, asamt hus Gloriu Estefan, miami vice husid og fullt af odrum fraegum husum... og hus Puff Daddy.

Fyrst var glampandi sol og steikjandi hiti en nuna hefur verid mikil rigning og brjaladar thrumur og eldingar. Vid forum a strondina en thad matti ekki fara i sjoinn vegna storra aldna. Vid erum buin ad kaupa okkur snorkel-sett sem verdur ad bida betri tima.

Vid skruppum a strandmarkad eitt kvoldid, skelltum okkur i svaka fyndid nudd-taeki, kari keypti ser 2 boli og svo  i lokin akvadum vid ad kaupa okkur 3 DAGA SKEMMTISIGLINGU TIL BAHAMAS EYJA!!! Thad er svolitid ur planinu okkar, en thetta kostadi jafnmikid og hotelgisting a Valentinusardag. Skipid heitir Emperial Majesty og tekur 2000 manns, thar eru naeturklubbar, sundlaug, spilaviti, veitingastadir og margt fleira. Vid megum borda eins mikid og vid viljum og allt er innifalid. Auk thess faum vid heilan dag a Bahamas eyjum.

Thad er lika gaman ad segja fra thvi ad vid forum a morgun og i vedurfrettunum i gaer var einmitt sagt i spanni fyrir morgundaginn "it's not a good day to be on a boat".

Nuna sitjum vid a internetkaffi og vorum ad koma ur Seaquarium thar sem vid saum hofrungasyningar, saeljonasyningu og hahyrningasyningu og saum t.d. hinn heimsfraega Flipper og Snowflake ur Ace Ventura.

I gaekvoldi bordudum vid a spaenskum veitingastad (hotelid okkar er i spaenska hverfinu) og thar var svaka salsa stemning. Vid satum uti undir litilli "solhlif" thegar byrjadi ad hellirigna og thad var vodalega kosy ad sitja undir litlu hlifinni en vid urdum hins vegar alveg rennandi og fiskurinn sem kari varad borda gat naestum thvi synt af disknum.

nuna erum vid ad fara i bio og hver veit hvar vid verdum thegar vid bloggum naest :)

kvedja,

Lara og Kari.
Svalur